Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu góða fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð að Fífumóa 3e í Njarðvík.

Nánari lýsing:
Forstofa
með flísum á gólfi, þar er fataskápur.
Stofa og eldhús eru í opnu rými. Á eldhúsi eru flísar á gólfi og nýleg ljós innrétting með helluborði og háf, gert er ráð fyrir uppþvottavél. Á stofu er parket á gólfi, þaðan er útgengt á svalir.
Innan íbúðar eru tvö herbergi með parketi á gólfum, fataskápur er í öðru þeirra.
Eigninni tilheyrir rúmgott herbergi sem staðsett er á fyrstu hæð, þar er parket á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi. Þar er stílhrein svört innrétting, upphengt salerni og sturtuklefi auk aðstöðu fyrir þvottavél / þurrkara.
Geymsla með máluðu gólfi.

Húsfélag stendur vel en fyrirhugað er að skipta um járn á þaki og svo í framhaldinu að taka húsið í gegn að utan. Tímasetning hefur ekki verið ákveðin.

Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Fífumói

260 - Njarðvík
39.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 95fm
Herbergi: 4
Inngangur: Sameiginlegur
Byggingaár: 1980
Stofur: 1
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 33.750.000
Brunabótamat: 40.400.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin