PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt einbýlishús að Hólagötu 2a í Vogum
Um er að ræða fallegt einbýlishús með bílskúr, fjórum svefnherbergjum, auðvelt er að bæta því fimmta við, rúmgóðum stofum og góðri verönd með heitum potti.
Frábær staðsetning innst í botnlangagötu, stutt í leiksskóla, grunnskóla, íþróttaaðstöðu, útivistarsvæði og þjónustu.
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús er opið inn í alrými eignar, þar er parket á gólfi, hvítlakkuð innrétting með granít borðplötum og eyju sem snýr inní stofu.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfum, þar er mikil lofthæð og útgengt á verönd.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkar, sturta og falleg innrétting. Baðherbergi er mjög rúmgott.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi, gott fataherbergi er inn af hjónaherbergi.
Barnaherbergin eru tvö í dag en auðvelt er að bæta við þriðja barnaherberginu, parket á gólfum og góðir fataskápar. Einnig er búið að gera herbergi innst í bílskúr.
Þvottahús með flísum á gólfi, góð innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurkara í vinnuhæð, innagengt í skúr frá þvottahúsi og einnig er hurð úr þvottahúsi út á bílaplan.
Bílskúr er rúmgóður, milliloft er yfir hluta skúrsins og einnig er búið að útbúa rúmgott herbergi innst í bílskúr.
Lóð er frágengin, steyptar stéttar að framan, stór graslagður bakgarður og góð afgirt verönd með heitum potti.
**Gluggar endurnýjaðir að hluta
**Fjögur svefnherbergi, auðvelt að bæta fimmta herberginu við.
**Stór verönd og heitur pottur
**Stutt í flesta þjónustu
Góð eign á góðum stað sem vert er að skoða.
***Sýnum samdægurs***
Allir nánari upplýsingar veita:
Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða [email protected]
Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Hólagata
190 - Vogar
82.900.000 kr.
Tegund: Einbýli
Stærð: 164fm
Herbergi: 6
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2003
Stofur: 2
Svefnherbergi: 4
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 64.250.000
Brunabótamat: 75.450.000