Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir góða fimm herbergja íbúð á jarðhæð að Skógarbraut 924b í Reykjanesbæ. 

Eignin var töluvert endurnýjuð árið 2018. Þá var eldhús og baðherbergi endurnýjað ásamt fataskápum og innihurðum. Rafmgnstafla var endurnýjuð og rafmagn að mestu. Ofnar hafa verið endurnýjaðir.

Nánari lýsing:
Eldhús
með parketi á gólfi og ljósri innréttingu með eyju. Gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Stofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á verönd með skjólveggjum.
Svefnherbergis gangur með parketi á gólfi, þar er lítill skápur.
Svefnherbergin fjögur eru með parketi á gólfum og það eru fataskápar í þeim öllum.
Baðherbergin tvö eru með flísum á gólfi og veggjum að hluta til. Þar eru nýjar ljósar innréttingar og upphengd salerni. Á öðru þeirra er baðkar með sturtu og í hinu er sturta. Annað baðherbergið er inn af hjónaherberginu.

Þvottaaðstaða er á fyrstu hæð og er sameiginleg fyrir allar íbúðirnar, þar eru vínil flísar á gólfi. Sér geymsla er í sameign, þar er málað gólf.  Sameign er snyrtileg, á gólfum eru vínil flísar og teppi.

Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skógarbraut

262 - Reykjanesbær
48.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 123fm
Herbergi: 5
Inngangur: Sameiginlegur
Byggingaár: 1978
Stofur: 1
Svefnherbergi: 4
Baðherbergi: 2
Fasteignamat: 38.200.000
Brunabótamat: 50.650.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin