Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir góða 3 - 4ra herbergja íbúð á þriðju hæð að Skógarbraut 924 í Reykjanesbæ. 

Eignin var endurnýjuð töluvert árið 2021. Þá var m.a. skipt um gólfefni og innihurðar. Baðherbergi og eldhús var endurnýjað ásamt fataskápum. Rafmagn var endurnýjað að hluta ásamt töflu, rofum og tenglum.   Búið er að skipta um alla ofna.

Nánari lýsing:
Hol
með parketi á gólfi og fataskápum. 
Eldhús með parketi á gólfi og nýrri ljósri innréttingu með helluborði, ofni og viftu. Gert er ráð fyrir uppþvottavél. 
Stofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á svalir. Stofa er í dag nýtt sem auka svefnherbergi og holið er nýtt sem stofa.
Svefnherbergin tvö eru  með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta til. Þar er ný ljós innrétting, upphengt salerni og baðkar með sturtu.

Þvottaaðstaða er á fyrstu hæð og er sameiginleg fyrir allar íbúðirnar, þar er dúkur á gólfi. Sér geymsla er í sameign, þar er málað gólf. Á gólfum í sameign eru vínil flísar og teppi. 

Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skógarbraut

262 - Reykjanesbær
39.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 89fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sameiginlegur
Byggingaár: 1978
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 30.400.000
Brunabótamat: 37.550.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin