Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir til sölu 5 herbergja steinsteypt parhús að Fífudal 23, 260 Reykjanesbæ.
Um er að ræða fallegt og vel skipulagt hús á góðum stað í Reykjanebæ.
Eignin er skráð 195 fm og þar af er bílskúr 33,2 fm.

**SÝNUM SAMDÆGURS**
*Eignin getur verið laus við kaupsamning


Nánari lýsing:
Forstofa hefur flísar á gólfi og góðan fataskáp.
Eldhúsið er opið inní stofu með flísum á gólfi, stór hvít innrétting, stór eyja sem skilur af hol og eldhús. Nýleg uppvöskunarvél, nýlegur innbyggður ofn, helluborð og vifta.
Stofa/borðstofa hefur harðparket á gólfi, stóra glugga og hurð út á stóra verönd með skjólveggjum.
Svefnherbergin eru fjögur og hafa parket á gólfum og fataskápa.
Baðherbergi er stórt og rúmgott og hefur flísar á gólfi og veggjum að hluta, sturtu, hornbaðkar, upphengt salerni og góða innréttingu við vask. Útgengt er á verönd frá baðherbergi.
Þvottahús hefur innréttingu og þar er gert ráð fyrir þvottavél og þurkara, innangengt er í bílskúr frá þvottahúsi.
Bílskúr er rúmgóður og hefur bæði inngangshurð og aksturshurð, rafmagnsopnun er á aksturshurð
Steypt loftaplata er í húsinu og er stigi úr bílskúr uppá rúmgott geymsluloft.
Stór verönd með skjólveggjum er á baklóð og stórt steypt bílaplan með hitalögn er að framan

*Fjögur svefnherbergi
*Gólfhiti í öllu húsinu.
*Stórt bílaplan með hitalögn
*Steypt loftaplata
*Laust strax.


Eign á góðum stað sem vert er að skoða

Allar nánari upplýsingar veita:
Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða [email protected]
Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected] 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.


 

Fífudalur

260 - Njarðvík
89.500.000 kr.
Tegund: Parhús
Stærð: 195fm
Herbergi: 5
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2007
Stofur: 1
Svefnherbergi: 4
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 77.000.000
Brunabótamat: 83.760.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin