Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilega 4ra herbergja íbúð á 1.hæð með sérinngang að Grænulaut 10, 230 Reykjanesbæ.
Íbúðin er 110,1fm þar af 4,3fm sérgeymsla á fyrstu hæð,  20 fm verönd með svalalokun ásamt palli með skjólveggjum og heitum potti.

Nánari lýsing:
Forstofa 
er flísalögð og þar er góður skápur.
Stofa hefur parket á gólfi, þaðan er útgengt á verönd með heitum potti. Hluta útisvæðis er lokað með glerlokun sem stækkar íbúðina töluvert. 
Eldhús er parketlagt, þar er góð innrétting með góðum tækjum, ofn, helluborð og háfur ásamt eyju. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja.
Þvottahús er flísalagt. Hvít innrétting með skolvaski og gott skápapláss þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergin eru þrjú og rúmgóð, öll með skápum og parket á gólfi.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og á veggjum að hluta. Hvít innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta.

**Sér inngangur.
**Stór verönd með skjólveggjum í suðvestur, lokuð af með gleri að hluta.
**Heitur pottur á verönd.
**Sameiginleg hjóla og vagna geymsla er á 1.hæð.
**Hiti í stétt við hús.
**Sér þvottahús í íbúðinni.
**Stutt í alla helstu þjónustu.
**Merkt bílastæði fylgir eigninni.

Glæsileg eign á frábærum stað í Reykjanesbæ sem vert er að skoða.


Allar nánari upplýsingar veita:
Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða [email protected]
Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected] 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.













 

Grænalaut

230 - Keflavík
69.500.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 110fm
Herbergi: 4
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2020
Stofur: 1
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 49.150.000
Brunabótamat: 53.500.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin