PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu gott fimm herbergja einbýlishús ásamt bílskúr að Kirkjubraut 29 í Njarðvík. Eignin er á eignarlóð.
Nánari lýsing:
Forstofa með dúk á gólfi. Þar er aðgengi að rými sem átti að vera gestasalerni en hefur verið nýtt sem lítil geymsla.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á baklóð.
Eldhús með dúk á gólfi. Þar er gömul innrétting.
Þvottahús með máluðu gólfi, þar er góður skápur.
Herbergisgangur með parketi á gólfi.
Herbergin fjögur eru með parketi á gólfum, fataskápar eru í þremur þeirra. Eitt herbergjanna er mjög rúmgott og væri hægt að skipta upp í tvö.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, þar er baðkar og sturtuklefi.
Bílskúr er fullfrágenginn, þar er málað gólf. Góð lofthæð svo hægt væri að setja geymsluloft. Útgengt er frá bílskúr á baklóð. Bílskúrshurð er nýleg.
Alrými eignarinnar er opið og bjart. Lóð er frágengin á snyrtilegan hátt, bílaplan er steypt. Á baklóð er hellulögð aðstaða með skjólveggjum. Búið er að endurnýja ofna, ofnalagnir eru í eir. Þak hefur verið endurnýjað ásamt gluggum að hluta. Nýlega voru sett vatnsbretti undir glugga.
Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Kirkjubraut
260 - Njarðvík
79.800.000 kr.
Tegund: Einbýli
Stærð: 174fm
Herbergi: 5
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1980
Stofur: 1
Svefnherbergi: 4
Baðherbergi: 4
Fasteignamat: 63.900.000
Brunabótamat: 74.100.000