PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu þriggja til fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð ásamt bílskúr að Tjarnargötu 24 í Keflavík.
Góð staðsetning í Holtaskólahverfi þar sem stutt er í alla þjónustu, framhalds- grunn- og leikskóli í göngufæri ásamt íþróttamannvirkjum.
Eign sem hefur verið töluvert endurnýjuð.
Nánari lýsing:
Forstofa með parket á gólfi og hurð niður á fyrstu hæð.
Hol með parketi á gólfi og fataskáp.
Stofa / borðstofa með parketi á gólfi. Þar væri mögulegt að gera auka herbergi.
Eldhús hefur parket á gólfi, nýlega sérsmíðaða innréttingu frá HTH með innbygðum ísskáp og uppþvottavél. Öll tæki keypt ný 2022.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og á veggjum að hluta. Þar er innrétting við vask og baðkar með sturtu.
Hjónaherbergi hefur parket á gólfi og góðan fataskáp, útgengt er á svalir úr svefnherbergi.
Barnaherbergi hefur parket á gólfi.
Stigi niður á fyrstu hæð teppalagður.
Þvottahús er á fyrstu hæð, flísar á gólfi. Þvottahús er sameigin íbúðana tveggja í húsinu.
Tvær litlar sér geymslur eru á neðrihæð og einnig er hurð út á lóð frá fyrstu hæð.
Bílskúr hefur góða innkeyrsluhurð sem var endurnýjuð fyrir einhverjum árum og einnig er gönguhurð á hlið skúrsins, góð geymsla er í enda bílskúrs og hefur hún sér inngang.
Lítið gróðurhús er á lóðinni og fylgir það eigninni
*Járn á þaki endurnýjað 2021*
*Eldhús allt endurnýjað 2022*
*Búið að endurnýja hluta af gluggum íbúðar*
*Nýleg útidyrahurð*
*Allar hurðar í íbúð nýlegar*
*Nýleg rafmagnstafla*
*Hús nýlega málað að utan*
Mikið endurnýjuð eign á góðum stað í Keflavík sem vert er að skoða.
***SÝNUM SAMDÆGURS***
Allar nánari upplýsingar veita:
Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]
Hákon Ó Hákonarson löggiltur fasteignasali í síma 899-1298 / 420-4030 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Tjarnargata
230 - Keflavík
55.900.000 kr.
Tegund: Hæð
Stærð: 128fm
Herbergi: 4
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1957
Stofur: 2
Svefnherbergi: 2
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 44.150.000
Brunabótamat: 50.780.000