PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt einbýlishús ásamt bílskúr að Norðurgarði 21 í Keflavík.
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi, þar er góður fataskápur.
Gestasalerni með flísum á gólfi, þar er lítil hvít innrétting og upphengt salerni.
Forstofuherbergi með parketi á gólfi.
Sjónhvarpshol með parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru með parketi á gólfi. Í stofu er fallegur arin.
Eldhús með flísum á gólfi. Þar er eikar innréttibg með granít borðplötu. Gott skápa og vinnupláss, gert er ráð fyrir tveimur ísskápum og uppþvottavél.
Fallegt sólhús sem hægt væri að breyta í herbergi að hluta til. Þaðan er útgengt á lóð.
Herbergisgangur með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi, þar er góður fataskápur,
Barnaherbergin eru með parketi á gólfum. Voru tvö en búið er að opna á milli tveggja þeirra en auðvelt að breyta aftur.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Þar er stílhrein hvít innrétting, baðkar og sturta.
Þvottahús með flísum á gólfi. Hvít innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, gott skápapláss. Útgengt á baklóð.
Bílskúr er 38 fm, þar er hiti og rafmagn. Frá bílskúr eru tvær inngönguhurðar, önnur þeirra þarfnast lagfæringar.
Alrými eignarinnar er opið og bjart. Frá sólhúsi er gengið út á verönd með skjólveggjum og heitum potti. Lóð er frágengin, bílaplan og stétt er steypt og hellulagt, hitalögn er í hellulagða hlutanum. Geymslukofi á baklóð. Gólfhiti er í eldhúsi og sólhúsi.
Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Norðurgarður
230 - Keflavík
89.900.000 kr.
Tegund: Einbýli
Stærð: 211fm
Herbergi: 6
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1975
Stofur: 2
Svefnherbergi: 4
Baðherbergi: 2
Fasteignamat: 76.200.000
Brunabótamat: 91.750.000