Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu nýlegt fjögurra herbergja parhús ásamt bílskúr að Fjöruklöpp 5 í Garði, Suðurnesjabæ.

Nánari lýsing:
Forstofa
með flísum á gólfi.
Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu rými. Hvít stílhrein innrétting í eldhúsi með góðu skápa og vinnuplássi, eyja með helluborði. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og innbyggðum ísskáp. Frá borðstofu er útgengt á lóð.
Herbergin þrjú eru með parketi á gólfum, fataskápar eru í þeim öllum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Hvít innrétting, upphengt salerni og sturta.
Bílskúr með máluðu gólfi. Þvottarýmis innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.

Stílhrein og falleg eign, alrými er opið og bjart með mikilli lofthæð. Herbergi eru rúmgóð. Bílaplan er steypt og í því er hitalögn fyrir framan skúr.

Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

 

Fjöruklöpp

250 - Garður
58.400.000 kr.
Tegund: Parhús
Stærð: 137fm
Herbergi: 4
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2022
Stofur: 1
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 46.950.000
Brunabótamat: 68.900.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin