Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir nýtt og glæsilegt 17 íbúða fjölbýlishús á góðum stað að Tjarnabraut 4 í Innri Njarðvík.
Vel skipulagðar þriggja og fjögurra herbergja íbúðir sem skilast fullfrágengnar með gólfefnum. Innréttingar eru sérsmíðaðar með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Alrými íbúðinna er bjart, þar eru stofa og eldhús í opnu rými. Gólfhiti er í eignunum. Búið er að leggja fyrir rafhleðslu við öll stæði auk þess sem tvær hleðslustöðvar verða uppsettar á lóð.  Eignirnar verða tilbúnar til afhendingar í Maí 2023.


Nánari lýsing íbúðar 203:
Glæsileg fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð með sér inngangi. Íbúðin skiptist í anddyri með fataskáp. Stofu og eldhús í opnu rými, þrjú svefnherbergi með fataskápum. Frá stofu er útgengt á svalir. Baðherbergi með sturtu, þar er aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Eigninni fylgir geymsla sem staðsett er á fyrstu hæð. 

Tjarnabraut 4
Glæsilegt staðsteypt hús sem er einangrað að utan og klætt með báruðu áli. Svalahurðir og gluggar úr álklæddu timbri. Eignirnar skilast fullfrágengnar að utan sem innan. Íbúðirnar eru með sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia,  fataskápar í herbergjum frá GKS. Hnotu innréttingar í eldhúsi og baðherbergi,  innihurðar og fataskápar eru hvítir. Vönduð tæki í eldhúsi frá AEG, span helluborð. Á baðherbergjum eru flísar á gólfi og tveimur veggjum. Eignirnar eru vel skipulagðar. Stétt við innganga er hellulögð og gönguleiðir með snjóbræðslukerfi. Bílastæði verða malbikuð og á lóð verður hjólaskýli.
Frábær staðsetning í nálægð við skóla og leikskóla ásamt verslun og þjónustu. Samgöngur til og frá svæðinu eru auðveldar og örstutt er á Reykjanesbraut.
 
Nánari upplýsingar veita:
Lilja Valþórsdóttir löggiltur fasteignasali s: 860-6886, [email protected],
Hákon Ó. Hákonarson aðstoðarmaður fasteignasala s: 899-1298, [email protected]
Eða á skrifstofu Prodomo að Hafnargötu 15, Reykjanesbæ

 

Tjarnabraut

260 - Njarðvík
52.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 82fm
Herbergi: 4
Inngangur: Sameiginlegur
Byggingaár: 2023
Lyfta:
Stofur: 1
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 18.050.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin