Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu góða fjögurra herbergja neðri hæð að Tjarnabakka 4 í Njarðvík. Birt stærð eignar er samtals 152,8 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands þar af er bílskúr 24,4 fm.
 
Nánari lýsing:
Forstofa
með flísum á gólfi og fataskáp.
Hol með parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi, Þaðan er útgengt á stóra verönd.
Eldhús með flísum á gólfi. Snyrtileg hvít innrétting með lítilli eyju.
Herbergin þrjú eru með parketi á gólfum, fataskápar eru í þeim öllum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Góð innrétting, upphengt salerni og baðkar með sturtu.
Þvottahús með flísum á gólfi og lítilli innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Eigninni fylgja tvær geymslur. Önnur er innan íbúðar, þar eru flísar á gólfi og hillur. Hin er í sameign, þar er málað gólf og hillur.
Bílskúr er 24,4 fm.

** Sérinngangur
** Stór verönd
** Þrjú svefnherbergi
** Þvottahús og geymsla innan eignar
** Bílskúr


Góð eign sem vert er að skoða. Stutt í skóla og leikskóla.

Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 eða [email protected]
Allar nánari upplýsingar veitir Hákon Ó Hákonarson aðstm. fasteignasala  í síma   899-1298 / 420-4030 eða [email protected]



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 

Tjarnabakki

260 - Njarðvík
59.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 152fm
Herbergi: 5
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2007
Stofur: 1
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 55.850.000
Brunabótamat: 62.310.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin