Eign


HLUTDEILDARLÁN FRÁ HMS MÖGULEGT
PRODOMO fasteignasala kynnir glæsilega tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð að Skógarbraut 918 í Reykjanesbæ. Til afhendingar við kaupsamning.

** BÓKAÐU SKOÐUN Í SÍMA 860-6886 - Lilja eða 899-1298 - Hákon **

Eignin hefur mikið verið endurnýjuð. Harðparket á gólfum er frá Parka sem og hurðar. Baðherbergi hefur verið endurnýjað, þar eru flísar frá Byko og innrétting frá Parka. Ný heimilistæki eru í eldhúsi og  sérsmíðuð innrétting frá Parka. Rafmagn hefur verið endurnýjað og eru rofar og tenglar nýir. Einnig er búið að endurnýja rafmagnstöflur.  Búið er að endurnýja skolp út fyrir sökkul, skipta um neysluvatns lagnir, ofnalagnir og ofna. Íbúðin er nýmáluð.  Gluggar hafa verið endurnýjaðir sem og svalahurðar, svalir eru einnig nýjar. Eignin verður máluð að utan sumarið 2023 ásamt því að þak verður yfirfarið.

Nánari lýsing íbúðar 302:
Stofa
með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á svalir.
Eldhús með parketi á gólfi og nýrri fallegri innréttingu með helluborði, ofni og háf. Gert er ráð fyrir innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta til. Ný hvít innrétting, speglaskápur með led lýsingu að neðan, upphengt salerni, hankdklæðaofn og sturta. Hreinlætistæki frá Byko. Þar er aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.

Eigninni fylgir lítil geymsla í sameign. Köld hjólageymsla verður við gafl hússins. Bílastæðum verður fjölgað og koma fleiri stæði við enda hússins.  Sameign er mjög snyrtileg, á gólfum eru ný gólfefni, vínil flísar og teppi.

Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða lilja@prodomo.is - Hákon Ó. Hákonarson aðstm. fasteignasala  í síma  899-1298 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skógarbraut

262 - Reykjanesbær
32.700.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 58fm
Herbergi: 2
Inngangur: Sameiginlegur
Byggingaár: 1978
Stofur: 1
Svefnherbergi: 1
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 21.950.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin