PRODOMO fasteignasala kynnir þriggja herbergja raðhús í byggingu að Báruskeri 5b í Sandgerði, Suðurnesjabæ.
Eignin skilast fullbúin að utan sem innan og er áætluð afhending í Júní / Júlí. Einnig er mögulegt að kaupa hana ófrágengna að hluta til eftir nánara samkomulagi við seljanda.
Utanhúss:
Um er að ræða timburhús með kraftsperruþaki á staðsteyptum undirstöðum. Í útveggjum er bandsöguð timburklæðning í dökkgráum lit, hurðar og gluggar úr timbri í hvítum lit. Þakkantur er timburklæddur í hvítum lit, þak er báruklætt ( alusink ). Lóð skilast tyrfð, malbikuð bílastæði verða við enda húsaraðarinnar ásamt því að malbikað verður fyrir framan húsaröðina. Á baklóð verður u.þ.b 18 fm timburpallur með skilrúmi á milli eigna. Sorptunnuskýli verða við enda húsaraðarinnar.
Innanhúss:
Veggir og loft verða gipsklædd og máluð í ljósum litum. Gólfhitakerfi er í eigninni. Baðherbergi og geymsla verða með vélrænni loftræstingu. Innrettingar og fataskápar eru sérsmíði. Parket og innihurðar eru frá Birgissyni.
Forstofa verður flísalögð og þar verður fataskápur.
Stofa og eldhús eru í opnu rými, þaðan er útgengt á verönd. Í eldhúsi verður hvít innrétting með innbyggðri uppþvottavél, span helluborði, ofni.
Baðherbergi verður flísalagt með samlitum flísum á gólfi og veggjum. Þar verður hvít innrétting, upphengt salerni og sturta. Á baðherbergi er aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara og verður innrétting þar sem gert er ráð fyrir tækjunum í vinnuhæð.
Herbergin tvö verða með parketi á gólfum, þar verða fataskápar.
Geymsla verður með parketi á gólfi.
Allar nánari upplýsingar veita:
Lilja Valþórsdóttir löggiltur fasteignasali s: 860-6886, [email protected] og Hákon Ó. Hákonarson aðstoðarmaður fasteignasala s: 899-1298, [email protected]
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
*Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Bárusker
245 - Sandgerði
46.500.000 kr.
Tegund: Raðhús
Stærð: 82fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2022
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Fasteignamat: 20.350.000