Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu góða fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð að Dalsbraut 16 í Njarðvík.
Góð staðsetning þar sem nýr grunn- og leikskóli er í göngufæri.

Nánari lýsing- íbúð 202:
Forstofa
með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa, eldhús og borðstofa er í opnu rými. Þar er parket gólfi og útgengt á svalir. Stílhrein eldhúsinnrétting og möguleiki að uppþvottavél og ískápur fylgi með.
Hjónaherbergi er rúmgott, hefur parket á gólfi og góðan fataskáp.
Barnaherbergin eru tvö og hafa bæði parket á gólfi og fataskáp, annað herbergið er skráð sem geymsla á teikningum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Þar er falleg innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta. Aðstaða fyrir þvottavél og þurkara er á baðherbergi
Sér geymsla í sameign og einnig er sameiginleg hjóla/vagna geymsla.

Um er að ræða snyrtilegt og viðhaldslítið  11 íbúða hús byggt 2018, merkt bílastæði fylgir eign. 
Nýr og glæsilegur grunn-leikskóli í göngufæri og nýtt íþróttahús og sundlaug í byggingu núna.
Flott íbúð á góðum stað sem vert er að skoða.
***SÝNUM SAMDÆGURS***


Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 eða [email protected]
Allar nánari upplýsingar veitir Hákon Ó Hákonarson löggiltur fasteignasali í síma  899-1298 / 420-4030 eða [email protected]



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.


 

Dalsbraut

260 - Njarðvík
50.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 81fm
Herbergi: 4
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2018
Stofur: 1
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 41.200.000
Brunabótamat: 41.000.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin